38 vikur
Hæhæ, já jæja nú eru víst liðnar 38 vikur hjá mér - næstum því 9 mánuðir. Ég ætla að sjá til hvort að ég bloggi e-ð í júní .. kannski að ég taki mér bara frí frá bloggunum :-) Kemur bara í ljós :-)
Fimmtudagur 21/5: lagði af stað í mitt litla ferðalag á eigin fótum! :-) Tók lest frá Domo, skipti í Mílanó og kom síðan til bæjarins Aversa sem er rétt hjá Napoli um 19:30 leytið .. Þar tóku hostpabbi 2 og Valentina dóttir hans við mér (sama fjölskylda og ég var hjá í mars í skiptiviku AFS). Mikið rosalega var gaman að vera komin þangað aftur :-) í kæfandi hitann og allt ruslið á götunum!
Um kvöldið fórum við Valentina út með vinum hennar .. fórum fyrst á einhvern bar og svo ákváðu þessir tveir vinir hennar að taka bara rúnt með okkur til Napolí til þess að sýna mér Napolí að næturlagi :-) mjög gaman :-)
Föstudagur 22/5: um miðjan daginn fór ég heim til Nui (tælenski skiptineminn sem býr í Aversa) og var með henni allan daginn .. löbbuðum aðeins um bæinn og fórum í einhvern almenningsgarð þ.s. við tókum alveg helling af myndum :-).
Við Vale fórum aftur út þetta kvöldið en með öðrum vinum .. ég verð nú að viðurkenna að það var frekar fúlt fyrir mig því að þessir vinir hennar töluðu bara Napoletano (mállýskan í Napolí) sem er allt annað tungumál! Ég skildi ekki neitt :-( mér leið eins og mér leið í september og október..
Laugardagur 23/5: snemma um morguninn lögðum ég, Valentina og Patrizia (hostmamma 2) af stað til Napolí til að fara á risaútimarkað. Þar keypti ég mér m.a. mjög flott bikiní því seinna um daginn var planið að fara á ströndina. Um miðjan daginn lögðum við öll fimm (ég, Valentina, hostmamma 2, hostpabbi 2 og Simona yngri stelpan) síðan af stað til Lazio (héraðið sem Róm er staðsett í) þ.s. þau eiga hjólahýsi í einu litlu hjólhýsaþorpi við ströndina. Komum þangað um 5 leytið og þ.a.l. tók það því ekki fyrir okkur að vera að fara í sjóinn. Fram að kvöldmat - sem var borðaður um 10 leytið þ.s. að enginn er að stressa sig á neinu á þessum slóðum :-) - vorum við stelpurnar bara að hanga með vinum þeirra sem dvelja þarna líka á sumrin.
Sunnudagur 24/5: strandardagurinn mikli :-) skiptist á því að fara í sjóinn og liggja á ströndinni frá kl. 11-14 þegar að við borðuðum hádegismatinn. Var síðan mætt aftur kl. 15 og var alveg til kl. 18 - alveg æðislegt alveg hreint :-) sjórinn hreinn og volgur og hitastigið rétt yfir 30°C. Ég bar á mig ofursterka barnasólarvörn en hef greinilega ekki borið á mig nóg því að um kvöldið byrjaði ég að vera rauðari og rauðari út um allan líkaman!:/ Við komum heim aftur um 22:30 leytið og var ég þá öll logandi!!
Mánudagur 25/5: úff .. ég held ég hafi aldrei á ævinni sólbrunnið jafn illilega og þennan dag! Þegar að ég vaknaði um morguninn var ég eldrauð út um allt nema í andlitinu og á handleggjunum og svo voru fæturnir þrútnari heldur en allt - ökklarnir mínir voru m.a.s. horfnir útaf þrota/þrúttleika (hvað er eiginlega nafnorðið yfir þrútinn:/?!). Það þýddi þó ekkert að vera að vorkenna sjálfri mér því ég gat eiginlega bara sjálfri mér um kennt að bera ekki meira á mig ..
Kl. 8 komu Nui og hostmamma hennar að ná í mig því við Nui vorum að fara til Napolí. Það fyrsta sem ég gerði á lestarstöðinni í Napolí var að fara í apótek og kaupa mér rándýrt eftirsólarkrem og hljóp ég svo inn á McDonald's til þess að maka því svoleiðis á mig.
Á lestarstöðinni hittum við síðan alla skiptinema AFS sem dvelja í Campania héraði og fórum með þeim á einhvern undirbúningsfund fyrir ítalska krakka sem eru að fara út sem skiptinemar í haust. Við þurftum öll að fara upp á svið og kynna okkur á okkar eigin tungumáli :-) mikið rosalega fannst mér það erfitt .. mér fannst ég nefnilega ekki geta talað á íslensku! :/ Frekar kjánalegt :-).
Eftir þennan fund fórum við skiptinemarnir öll saman í miðbæ Napolí að fá okkur pizzu. Þennan dag kynntist ég enn fleiri skemmtilegum skiptinemum frá alls konar mismunandi löndum :-).
Þegar við Nui komum aftur til Aversa fór ég aðeins heim til hennar en svo kom hostpabbi 2 að ná í mig og ég fór heim og beint í sturtu og setti fullt af kremi á mig enda búin að þjást allan daginn!
Þriðjudagur 26/5: það var víst komið að heimför .. tók lest frá Aversa til Napolí þ.s. ég þurfti að skipta um lest og bíða í 1 klst. Tók síðan lúxuslest frá Napolí til Mílanó - Frecciarossa heitir hún. Klósettið var svo flott miðað við lest að ég naut þess að fara á það liggur við á hverri klukkustund :-) hehe (lestarferðin tók 5 ½ klst.). Í Mílanó skipti ég svo aftur um lest til þess að fara til Domodossola. Í þeirri lest sat ég á móti einu svissneskum manni sem talaði alla leiðina við mig - og þá meina ég alla leiðina! Ég var svoleiðis dauðuppgefin eftir langt ferðalag og langaði helst til þess að hlusta bara á iPodinn í rólegheitunum .. en nei nei! Þurfti að taka þátt í samræðum hans á þjálli ítölsku ..
Miðvikudagur 27/5: ég var farin að hlakka svo til að fara í skólann og hitta stelpurnar en lenti svo í því að æla um nóttina og var að kafna úr kvefi að ég ákvað að vera ekkert að fara í skólann. Betra að taka sér eins dags frí í stað heillrar viku! Ég gæti trúað að þessi skyndilegi magaverkur og æla hafi e-ð tengst sólbrunanum.:/ Um daginn var ég þó ekki með neinn magaverk en kvefið var alveg í hámarki.
Um kvöldið var síðan bara fótbolti :-) Man. Utd. - Barcelona.
Fimmtudagur 28/5: fór loksins í skólann eftir langa fjarveru! Núorðið fer að styttast í lok skólanna hérna .. mér finnst nú kominn tími til - það er ekki hægt að sitja svona inni allan daginn á meðan það er sól og 30°C úti! Eftir skóla fór ég bara heim og tók því rólega enda var ekki enn orðin nógu frísk.
Föstudagur 29/5: eftir skóla fór ég aftur til Domo á smá bæjarrölt .. fór síðan út að hjóla og eftir það beint út með Auroru og var með henni allt kvöldið. Við erum farnar að reyna að nýta tímann sem best þessa dagana því það er svo stutt í að ég fari.. !!
Bestu kveðjur,
Katrín Sif
36 vikur
Hæhæ, nú er liðnar rúmar 36 vikur .. aðeins tæpar 7 eftir!
- Blogg tileinkað henni Örnu systur og afmælisbarni morgundagsins ;) Til hamingju með afmælið Arna! :)
Laugardagur 9/5: um morguninn í skólanum fékk ég að fara með Þjóðverjunum upp að Sacro Monte Calvario sem er rétt fyrir ofan Domo .. ágætis göngutúr alveg hreint :-). Um leið og ég kom heim byrjaði svoleiðis að hellirigna - þvílík heppni á okkur að það hafi ekki byrjað að rigna klst. fyrr.
Í kvöldmatnum borðaði ég heima hjá Auroru með henni og Valentinu. Við pöntuðum okkur ógeðslega vonda pizzu (svona er þetta þegar að maður er að prófa nýja staði ..) og fórum síðan að hlusta á einn frægan ítalskan leikstjóra - Luca Lucini - tala um myndirnar sínar.
Sunnudagur 10/5: snemma um morguninn lagði ég af stað með Jeff, Gianmaria (sjálfboðaliði AFS), Davide (líka sjálfboðaliði AFS) og kærustu Davide í smá dagsferð. Keyrðum fyrst til Verbania þ.s. við skoðuðum Villa Taranta (blómagarður með blómum og plöntum úr hinum ýmsu löndum). Eftir það tókum við bát út á Lago Maggiore og skoðuðum fyrst Isola Pescatore (ísl. Fiskimannaeyjan) og svo Isola Bella (ísl. Fallega eyjan). Báðar eyjarnar voru ofsalega flottar - hver annarri fegurri!:-) Fórum líka úr bátnum í Stresa (lítill bær) þ.s. allt morar í 5 og 6 stjörnu hótelum og villum fræga fólksins, þ.á.m. einni sem George Clooney á og annarri sem Berlusconi á. Að lokum fórum við til baka til Verbania með bátnum. Á leiðinni heim stoppuðum við í einni ísbúð þ.s. við keyptum okkur brjálæðislega góðan ís .. greinilega vinsæll ísveitingastaður því ég þurfti að bíða í 10-15 mín. í röð eftir að fá afgreiðslu - það var þó vel þess virði! :-) Ég kom síðan heim rétt fyrir kl. 18 eftir virkilega skemmtilegan dag. :-)
Mánudagur 11/5: um morguninn var bara venjulegur skóladagur .. við fengum ekki að gera neitt með Þjóðverjunum þennan daginn. Eftir skóla fór ég heim og síðan aftur til Domo þ.s. ég þurfti að hitta fólk til að tala um helgarferð sem ég er að fara í til Verona þann 16. maí. Áður en ég fór heim tókum við Elyse smá hring um Domo. Fyrir matinn fórum við Aurora síðan saman út að hlaupa aðeins til að hressa upp á lappirnar. :-)
Þriðjudagur 12/5: afmælisdagurinn minn!! :-) mín bara orðin 18 ára og sjálfráða. Það er nú ekki slæmt að fagna því á Ítalíu :-). Þegar ég mætti í skólann um morguninn hafði ég varla undan við að taka á móti kossum (svona er það þegar hver og einn gefur manni þrjá kossa!).
Við bekkurinn minn vorum bara til hádegis í skólanum því að kl. 13 lögðum við af stað til Stresa með Þjóðverjunum til þess að fara út á Lago Maggiore (annað skiptið mitt á þremur dögum) :-). Ég, Elisa Longo og Serena skemmtum okkur vel saman allan daginn.
Þegar við komum tilbaka til Domo um sjöleytið fórum við næstum öll út að borða saman í tilefni af afmælinu mínu :-). Í heildina var þetta virkilega skemmtilegur og vel heppnaður afmælisdagur hjá mér! :-)
Miðvikudagur 13/5: þennan daginn fór ég með Þjóðverjunum, Elyse og bekknum hennar í dagsferð til Mílanó. Tókum lest snemma um morguninn og fórum beinustu leið að dómkirkjunni (Il duomo di Milano) sem er alveg ótrúlega flott að mínu mati - bara að utan þó .. að innan heillaði hún mig ekkert svo. Skoðuðum líka „La Galleria", „La Scala di Milano", „Il Castello Sforzesco" og sáum líka að sjálfsögðu allar rándýru hátískubúðirnar - jeminn eini !! Við kíktum örlítið í búðir (ódýrari búðir) og flest allir náðu að kaupa sér eitthvað. :-) Komum svo heim aftur rúmlega sjö um kvöldið.
Fimmtudagur 14/5: við bekkurinn vorum í skólanum til hádegis, fórum þá öll saman að borða í mötuneytinu og tókum svo „La Vigezzina" (gömul lest) ásamt Þjóðverjunum upp í Val Vigezzo. Þar skoðuðum við sótarasafn (sá sem þrífur skorsteina ..) í bænum Santa Maria Maggiore og fengum svo að labba frjáls um bæinn eftir það.
Ég má nú til með að segja frá einu skemmtilegu sem gerðist um kvöldið :-) Alltaf á meðan við borðum kvöldmatinn hérna á heimilinu þá horfum við á einn spurningarþátt (L'Eredita heitir hann). Í þætti kvöldsins var spurt um íslensku jólasveinana í einum liðnum :-) spurningin var hvaða íslenski jólasveinn er það sem skellir hurðum og svo voru talin upp ca. 9 jólasveinanöfn og fólkið átti að reyna að giska á alla nema þann rétta. Svo hlógu þau svoleiðis og hristu hausinn á meðan þau reyndu að bera fram nöfnin :-) hehe ..
Föstudagur 15/5: sat aðeins einn tíma í skólanum og fór síðan með Þjóðverjunum og öðrum bekk úr skólanum mínum í Val Formazza í skoðunarferð. Skoðuðum eina kirkju (La Chiesa di Baceno), tvö söfn (Casa Forte og Museo Mineralogico) og fórum síðan í nokkurs konar spa með heitum sundlaugum - mjög notalegt og gott :-).
Laugardagur 16/5: snemma um morguninn lagði ég af stað með Valentinu trúnaðarmanni og Leöndru til Mílanó með lest. Á lestarstöðinni í Mílanó hittum við Alessöndru (trúnaðarmaður Leöndru) og saman tókum við aðra lest til Verona. Við komum síðan til Verona um hádegisbilið. Byrjuðum á því að fara upp á hótelið okkar til að skila af okkur bakpokunum - ekkert smá flott herbergi sem við fengum :-) risastórt með eldhúsaðstöðu og svaka svölum! Eyddum svo öllum deginum í bænum, skoðuðum Arena (hringleikahús svipað og Colosseo í Róm), hús Júlíu (Rómeó og Júlía) og ég snerti m.a.s. brjóstið á styttunni af henni því það á víst að boða gæfu. Auk þess skoðuðum við Piazza Erbe og fórum upp í Torre dei Lamperti þ.s. við fengum flott útsýni yfir alla borgina. Í loks dagsins fórum við í matarbúð og keyptum okkur í matinn til þess að geta notað eldhúsið okkar fína uppi á hóteli. :-)
Sunnudagur 17/5: skiluðum herberginu af okkur um morguninn og þurftum því að dröslast með bakpokana okkar allan daginn. Byrjuðum á því að fá okkur morgunmat á einum bar og fórum svo beint að skoða gröf Júlíu og síðan að Castelvecchio (kastali). Það var svaka líf í bænum því snemma um morguninn var Veronamaraþonið og því fullt af hlaupurum af öllum stærðum og gerðum með númer framan á sér á röltinu .. ég fékk svo mikið flashback á Reykjavíkurmaraþonið að það var ekki eðlilegt! Ég sá mig alveg fyrir mér vera þarna í stresskasti með mömmu og pabba að fara að keppa :-) hehe ..
Klukkan 17:30 tókum við síðan lestina aftur til baka, fyrst til Mílanó þ.s. við skiptum um lest og síðan alla leið til Domo. Ég kom svo heim gjörsamlega útkeyrð kl. 21:30!
Mánudagur 18/5: þrátt fyrir óendanlega þreytu eftir undanfarna daga reif ég mig upp kl. 6 um morguninn því kl. 7 átti ég að leggja af stað með rútu til Torino til þess að fara á risastóra bókahátíð með nokkrum krökkum úr skólanum. Það var eitt laust pláss og því bauð kennarinn mér að koma með :-). Vorum u.þ.b. 50 krakkar saman og nokkrir kennarar. Ég og Julie úr bekknum mínum vorum allan tímann saman á þessari hátíð .. þræddum alla bókabásana sem voru þarna og ég keypti mér m.a.s. eina bók - pastauppskriftabók með 600 ljúffengum uppskriftum! :-) Um hálftvö leytið vorum við orðnar svo þreyttar á því að vera þarna að við ákváðum að fara frekar í verslunarmiðstöðina sem var við hliðina á hátíðinni. Það var síðan ekki lagt af stað fyrr en klukkan rúmlega hálffimm heim.
Bestu kveðjur - Katrín Sif
35 vikur
Hæhæ, já nú eru víst liðnar heilar 35 vikur .. ég veit ekki hvort að ég eigi að hlæja eða gráta!! Mamma mia .. :/
Föstudagur 1/5: frí í skólanum útaf frídegi verkamanna. Ég var úti nánast allan daginn því veðrið er farið að vera alveg brjálæðislega gott hérna - sól og blíða :-). Fór út að hjóla, svo borðuðum við hádegismatinn úti á svölum, sat í sólbaði og las, fór út með Auroru og svo fórum við fjölskyldan út að borða um kvöldið - mjög góður og sumarlegur dagur :-) mér leið eins og ég væri komin í sumarfrí!
Laugardagur 2/5: eyddi öllum deginum (frá kl. 9 til 18) við að hjálpa til við íþróttadag fyrir krakka skipulagðan af hlaupahópnum mínum. Við Aurora og dætur Paolo hlaupaþjálfara vorum þarna saman og höfðum gaman að. Um kvöldið fór ég síðan aftur út með Auroru .. kíktum aðeins í nokkurs konar tívolí sem verður í Domo allan maímánuð. :-) Fórum þó eiginlega ekki í nein tæki.
Sunnudagur 3/5: um morguninn tók ég þátt í kyndlahlaupi (bárum kyndil niður dalinn) frá Antrona niður til Villa - 16 km. Ég hljóp þó ekki alla leiðina .. það var skipst á. Þetta tók okkur aðeins 1 klst. og 25 mín! :-) Rosa gaman fannst mér :-). Um miðjan daginn fór ég síðan í sund með mömmu Faustu og Roby.
Mánudagur 4/5: skólinn aftur .. það er sko aldeilis ekki spennandi að hanga inni í skólastofunni allan daginn þegar að það er svona glampandi sól úti! Ég var þó bara úti eftir skóla og fór líka út að hlaupa.
Þriðjudagur 5/5: 8 mánuðir liðnir síðan að ég kom til Ítalíu! Greyið Elisa Longo sagði við mig með sorgartóni: „Það eru bara 2 mánuðir þangað til að þú ferð Kat!" :-( Ótrúlega stutt eftir!
Eftir skóla skrapp ég aðeins til Domo og kíkti í búðir en kom þó snemma heim til þess að fara á hlaupaæfingu með hópnum. :-)
Miðvikudagur 6/5: sama sagan .. skóli og hlaupatúr í sólinni :-).
Fimmtudagur 7/5: strax eftir skóla fór ég með Elyse, host-mömmu hennar og host-systur til Vicolungo sem er í ca. 1 klst. fjarlægð frá Villadossola. Rétt fyrir utan þennan bæ er útiverslunarmiðstöð - Vicolungo outlet - sem við eyddum öllu eftirmiðdegi okkar í. Þetta var geðveikt töff, leit út eins og lítið þorp bara með búðum! :-) Við komum síðan ekki heim fyrr en um hálf 8.
Föstudagur 8/5: eftir skóla skrapp ég aftur til Domo til að heilsa upp á Þjóðverjana sem ég og bekkurinn fórum til í mars .. Stoppaði bara stutt, talaði smá við Susanne sem ég var hjá og fór svo heim aftur. Seinni partinn skrapp ég aðeins út að hlaupa í blíðunni :-).
Í kvöld ætla ég síðan fara út með Auroru hérna í Villa ..
Þangað til næst ;-)
Katrin Sif
34 vikur
Hæhæ, 34 vikur liðnar og sumarið komið á Ítalíu :-).
Laugardagur 25/4: það var frí í skólanum vegna „La Festa della Liberazione" (Frelsishátíðin - minnist þess þegar að Ameríkanarnir komu til Ítalíu og ráku alla Þjóðverjana burt, þann 25. apríl 1945 voru allir Þjóðverjarnir farnir burt). Fyrir hádegi fórum við Aurora því í skrúðgöngu í minningu þessara atburða. Eftir hádegi fór ég síðan í tæpan 2 klst. hlaupatúr :-) veit ekki hvernig mér tókst það!!
Síðan fyrir matinn dró Aurora mig í messu annars vegar út af því að hún var að syngja en hins vegar út af því að biskupinn var á svæðinu. Eftir messuna fórum við síðan saman til Domo ásamt fleiri krökkum á einn bar og síðan að hlusta á aðra vinkonu þeirra sem hélt smá tónleika .. ekkert smá flott hjá henni! :-)
Sunnudagur 26/4: svaf út - borðaði góðan sunnudagshádegismat - horfði á Mjallhvít bíómynd í sjónvarpinu með fjölskyldunni - fór í heimsókn til Valentinu, Maurizio og Massimo litla sem fæddist 19. apríl síðastliðinn :-) algjör dúlla - um kvöldið fór ég síðan út borða með Auroru og stórfjölskyldu hennar :-).
Mánudagur 27/4: fór í skólann og hóf nýja en stutta skólaviku og það í svoleiðis úrhellisrigningu! Við bekkurinn fengum að fara einum tíma fyrr heim eins og svo oft á mánudögum .. Ég gerði nánast ekkert allan daginn því það var varla hægt að fara út í þessa rigningu! Skrapp þó á bókasafni til að taka mér nýja bók og sinnti fleiri skyldustörfum.
Þriðjudagur 28/4: skóli - rigning - innihlaupaæfing
Miðvikudagur 29/4: fór í skólanum .. um miðjan daginn fór ég svo út að hlaupa í örstutta stund. Hitti einhvern vin Paolo sem ég hljóp síðan með á ofurhraða!! Seinni partinn fór ég síðan aðeins út með Auroru :-).
Fimmtudagur 30/4: síðasti skóladagurinn fyrir langt helgarfrí! :-) um miðjan daginn fórum við Jeff og fengum okkur ís enda sólin komin aftur. Síðan fór ég á hlaupaæfingu og um kvöldið fór ég á nokkurs konar uppistand til styrktar Abruzzo. Það var rosa gaman þar :-) sum atriðin geðveikt fyndin!
Kv. Katrín Sif
33 vikur
Laugardagur 18/4: fór í skólann og gerði ekki neitt eins og venjulega á laugardögum - það var líka bara helmingurinn af bekknum sem mætti. Ég bara get ekki skilið tilganginn með því að fara í skólann á laugardögum .. miklu sniðugra að vera kannski 2-3 sinnum í viku eftir hádegi.
Eftir hádegi fór ég í langan hlaupatúr í góða veðrinu. Fór síðan að hlusta á Auroru og hljómsveitina hennar æfa sig .. um kvöldið fórum við Aurora og fleiri krakkar út hljómsveitinni út að borða því að ein stelpan átti afmæli.:-)
Sunnudagur 19/4: svaf út :-) amma Wilma kom í mat til okkar í hádeginu eins og svo oft á sunnudögum .. Eftir hádegi var nú ekki mikið gert hérna á heimilinu - úti hellirigndi svoleiðis og því enginn í stuði til þess að fara út. Ég með mína vestfirsku hörku fór þó út í ágætis hjólatúr seinni partinn og kom síðan heim öll gegnumblaut og skítug!
Mánudagur 20/4: skóli um morguninn - tók síðan hörkuhjólatúr hérna í dalnum (Val d'Ossola) seinni partinn .. hjólaði í gegnum fullt af litlum bæjum sem ég hef aldrei komið til áður :-).
Um kvöldið þurfti ég að fara á fund í skólanum. Fékk far með Serenu og hún keyrði sjálf! Þetta var sko í fyrsta skipti sem hún keyrði með pabba sínum og ég var það hugrökk að setjast upp í bílinn - mamma mia!! Hún stóð sig þó alveg ágætlega þó að pabbi hennar hafi endalaust verið að gagnrýna hana og segja t.d. „ekki gera svona" og „þú verður sko strax felld ef þú gerir þetta" alltaf í leiðinlegum tón.
Þriðjudagur 21/4: í skólanum skilaði ég inn 4 bls. ritunarverkefni sem ég þurfti að gera og kennarinn var svoleiðis yfir sig hrifin!:-) Hún dáðist svo að því hvað ég væri orðin dugleg að skrifa á ítölsku :-). Það er alveg nauðsynlegt að fá svona komment af og til til þess að fá smá aukasjálfstraust til að tala og skrifa á ítölsku, a.m.k. fyrir mig..
Eftir skóla borðaði ég í Domo og fór síðan og horfði á bekkjarblakliðið mitt spila í skólanum :-) Sabrina var alveg æst í að ég myndi koma og horfa á hana svo að ég ákvað að drífa mig bara.
Seinni partinn tók ég síðan góða og langa hlaupaæfingu enda ekki hægt annað en að vera úti þegar veðrið leikur svona við mann.:-)
Miðvikudagur 22/4: jeminn eini! Ég er víst farin að tala of mikið um veðrið í þessum bloggum mínum en þennan daginn voru hvorki meira né minna heldur en 28°C!!:-) Eftir skóla var ég bara úti - borðaði hádegismatinn úti á svölum, sat síðan úti og las á meðan ég sleikti sólina og fór svo út að hlaupa seinni partinn. Sem betur fer var smá vindur þegar ég var að hlaupa sem kældi mig aðeins .. ef hann hefði ekki verið hefði ég sko kafnað úr hita - váá, nú er sko e-ð mikið að .. ég farin að vera ánægð með að það skuli vera vindur!! :-) hehe ..
Um kvöldið bakaði ég eitt stykki súkkulaðiköku því ég þurfti að koma með eina slíka í skólann fyrir fjáröflun okkar bekkjarins fyrir Þjóðverjavikuna í maí. Hún heppnaðist svona líka vel hjá mér enda ekki erfitt að skella tilbúnu deigi ofan í form og inn í ofninn :-) hehe .. já ég fór víst auðveldari leiðina í þetta skiptið eða kannski latari leiðina réttara sagt :-).
Fimmtudagur 23/4: í skólanum voru stelpurnar í bekknum svoleiðis yfir sig hrifnar af kökunni minni og þær tóku ekkert eftir því að þetta væri svona hálftilbúin keypt kaka .. spurðu mig m.a.s. um uppskriftina sem ég gat að sjálfsögðu ekki gefið þeim! :-) hehe .. skondið.
Eftir hádegi fórum við Jeff til Domo þ.s. við tókum einn hring, fengum okkur ís og fórum síðan heim aftur. Fyrir matinn fór ég á hlaupaæfingu .. við mættum þó bara tvær - ég og ein kona - og var þetta því engin svaka æfing.
Föstudagur 24/4: eftir skóla borðuðum ég, Elyse, Leandra og Jeff saman og fórum síðan í síðasta ítölskutímann okkar .. ótrúlegt en satt þá er þetta búið hjá okkur! Ég verð nú að viðurkenna að mér fannst það pínu sorglegt :-(.
Fyrir kvöldmatinn skrapp ég aðeins út með Auroru .. kíktum á einhverja bókasýningu sem er hérna í bænum þessa vikuna (eitthvað fyrir þig mamma:-)!). Vorum þó bara stutt þar .. :-)
Þangað til næst .. ;-)
Katrín Sif
32 vikur
Miðvikudagur 8/4: síðasti skóladagurinn fyrir páskafrí og allir fengu að fara heim einum tíma fyrr. Við papá fórum saman að versla í matinn og svo fór ég út að hlaupa seinni partinn ..
Fimmtudagur 9/4: vaknaði frekar snemma um morguninn og fór nánast strax út í göngutúr til að flýja konuna sem þrífur hérna! Eldaði mér síðan mat í hádeginu og eyddi eftirmiðdeginu úti á svölum í sólbaði að lesa bók. Það var nefnilega svo ofboðslega heitt úti - alveg eins og júlíveður heima! :-)
Fyrir matinn fór ég bara á hlaupaæfingu með hópnum.
Föstudagur 10/4: fór út að hlaupa um morguninn í hressandi rigningu. Eftir hádegi var ég bara að dunda mér heima - læra, lesa og horfa smá á „Into the wild" sem Jeff halaði niður fyrir mig. Við Aurora röltum síðan niður á „Settimo Cielo" seinnipartinn til þess að fá okkur ís.
Um kvöldið dreif ég mig í kirkjuna hérna í bænum í tilefni páskanna. Aurora vildi endilega að ég kæmi því hún var að syngja .. sat hliðina á frænda hennar sem var allan tímann að útskýra allt sem gerðist fyrir mér. Þetta var þó ekki beint messa heldur bara svona kvöldstund þ.s. voru sýndar ljósmyndir, sungið og svo talaði presturinn smá.
Laugardagur 11/4: um morguninn fór ég aftur í hlaupatúr og aftur í rigningu. Eftir hádegi skruppum við síðan í heimsókn til ömmu Franca sem gaf mér og Roby páskaegg og síðan líka til ömmu Wilma seinna um daginn.
Um kvöldið fór ég út með Elisunum tveimur, kærasta Elisa Conti frá Napólí, bróðir hennar og vinkonu Elisa Longo. Við fórum á einhvern bar þ.s. við spjölluðum og höfðum gaman þar til papá kom að ná í okkur.
Sunnudagur 12/4: svaf út í tilefni páskadags :-). Piera frænka kom um morguninn og gaf okkur Roby sitthvort eggið. Við gerðum ekkert sérstakt í tilefni dagsins fyrir utan það að borða smá páskaegg - páskamatarboðið okkar var nefnilega haldið á öðrum í páskum.
Eftir hádegismatinn fór ég þó út að hjóla, fyrst með mömmu Faustu og síðan ein. Það var svo gott veður - milt og logn. Seinni partinn talaði ég við alla fjölskylduna á Skype .. hef aldrei talað við svona marga í einu áður - mömmu,pabba, Oddnýju, Örnu, Teit, ömmu og afa! :-) Það var sannkölluð samkoma hjá okkur.
Mánudagur 13/4: um morguninn skrapp ég út að hlaupa fyrir páskaboðið okkar. Amma Franca, Piera frænka, Lorenzo frændi, Maurizio og Valentina komu öll í mat til okkar. Fengum svaka flotta margra rétta máltíð og síðan Colomba (páskakakan) í eftirrétt. Eftir matinn sátum við öll heillengi úti á svölum enda veðrið alveg æðislegt! :-)
Þriðjudagur 14/4: fyrir hádegismatinn fór ég með Auroru út á markaðinn á torginu hérna í bænum .. alltaf líf og fjör á hverjum þriðjudagsmorgni hérna :-). Eftir hádegi eyddi ég rúmum hálftímum á pósthúsinu því konurnar voru svo ofsalega sló þarna .. það myndaðist líka heljarinnar röð útaf „veseninu" í mér! :-) hehe .. Eftir það var ég bara í sólbaði og fór líka út að hlaupa með hópnum í þvílíkum hita! Úff .. það mætti halda að það væri komið hásumar hérna.
Miðvikudagur 15/4: fríið var víst búið og ég fór í skólann á ný .. þessi frí líða alltaf eins og ég veit ekki hvað! Bekkurinn minn fékk þó sem betur fer að fara einum tíma fyrr út :-).
Það fáa sem ég gerði yfir daginn var að tala aðeins við Oddnýju mína og tók síðan langan hlaupatúr.
Fimmtudagur 16/4: eftir skóla borðuðum við Elyse saman og tókum smá bæjarrölt í Domo .. það þurfti náttúrulega endilega að hellirigna daginn sem við ákváðum að gera e-ð saman. Ég var svo hryllilega óheppin að á meðan við vorum að borða var regnhlífinni minni stolið :-( af öllum 50 regnhlífunum sem voru þarna var minni auðvitað stolið - súper!
Seinni partinn mætti ég í leikfimisalinn tilbúin til að fara á hlaupaæfingu .. eftir hálftíma hangs þar inni sendi Paulo mig heim því hann vildi ekki að við færum út bara til þess að rennbleyta okkur. Það var þó allt í lagi að taka sér frí einn dag því ég er nú búin að vera svo dugleg að fara út undanfarna daga. :-)
Föstudagur 17/4: skóli - næstsíðasti ítölskutíminn - hlaupatúr með Auroru - kósíkvöld hjá mér heima.
Basta per ora .. alla prossima ;-)
Katrín Sif Kristbjörnsdóttir
7 mánuðir
Hæhæ, eru ekki bara liðnir heilir 7 mánuðir núna - ótrúlegt en satt!
Mánudagur 23/3: hmm .. fór í skólann alveg að kafna úr kvefi! Seinni partinn talaði ég síðan við Oddnýju á Skype, fór í heimsókn til ömmu Wilmu og eldaði uppáhaldið mitt „Melanzane alla parmigiana" :-) góður dagur fyrir utan það hvað ég var alveg viðþolslaus því mig langaði svo að fara út að hlaupa .. vildi þó ekki hætta á að versna af kvefinu.
Þriðjudagur 24/3: vegna kvefs gerði ég nánast ekki neitt þennan dag .. fór þó út í smá göngutúr seinni partinn í þvílíku roki bara til að fara smá út.
Miðvikudagur 25/3: eftir skóla fór ég út að labba með Jeff og síðan fengum við okkur ís .. mjög rólegir þessir dagar eitthvað.
Fimmtudagur 26/3: við Elyse, Leandra og Jeff hittumst öll fjögur í fyrsta skipti í langan tíma eftir skóla til að fara í ítölskutíma. Þessir ítölskutímar eru nú farnir að vera hálfslappir eitthvað .. Perugini setur okkur bara fyrir smá ritunarverkefni og svo gerum við það í rólegheitunum og hann fer yfir það.
Seinni partinn fór ég síðan á hlaupaæfingu með hópnum eftir alltof langa pásu.
Föstudagur 27/3: þennan dag fórum við Aurora í smá ferðalag saman. Tókum lestina kl. 8 til Novara þ.s. við tókum smá hring og fórum síðan til Biella þar rétt hjá þar sem hún skoðaði einn háskóla. Við sátum m.a.s. einn kennslutíma þar, einhvers konar félagsfræðitíma. Tókum síðan lestina aftur tilbaka og vorum komnar heim rúmlega 8 um kvöldið. Þá átti ég eftir að borða, lita augabrúnirnar, pakka niður, hafa til nesti, fara í hraðbankann og fara í sturtu! Gerði því allt í flýti nema geymdi sturtuna þar til morguninn eftir.
Laugardagur 28/3: papá skutlaði mér á lestarstöðina í Domo um 8 leytið og ég lagði síðan af stað - alein - tæplega 8:30. Í lestinni til Mílanó var ég í klefa með tveimur pöbbum á ferðalagi með brjáluðu börnunum sínum .. annar pabbinn sem var Bandaríkjamaður og algjör sprelligosi talaði endalaust við mig og þegar ég talaði ekki í 5 mín. spurði hann: „Hvað segirðu? Leiðist þér? Segðu mér eitthvað sniðugt." Ég sem hafði hugsaði mér að hlusta á iPodinn í rólegheitunum alla leiðina en nei nei!
Í Mílanó hitti ég Kalee og David (skiptinemar frá USA sem búa í nágrenni Mílanó) og saman tókum við lestina kl. 11 til Aversa rétt hjá Napolí. Í þeirri lest var ég aðeins heppnari með ferðafélaga! Það var nefnilega einn ofursætur Ítali sem sat á móti mér í lestarklefanum - síbrosandi augnakonfekt :-).
Við Kalee og David komum ekki fyrr en kl. 19:30 til Aversa þ.s. fjölskyldan mín tók á móti mér - mamman Patrizia, pabbinn Corrado og systurnar Valentina '89 og Simona '92.
Þau pöntuðu pizzu fyrir okkur í kvöldmatinn .. ég varð fyrir miklum vonbrigðum þegar ég smakkaði hana því hún var bara alls ekki góð!:-( Um kvöldið fórum við Simona í bæinn með vinum hennar, þ.á.m. vinkonu hennar sem hýsti líka skiptinema þessa vikuna - hann Caucau frá Kína.
Sunnudagur 29/3: þegar við vöknuðum um morguninn breyttum við klukkunni yfir í sumartíma og munar því 2 klst. á Ítalíu og Íslandi núna .. við töpuðum þ.a.l. einni klst. - eins og tími líði ekki nógu hratt hérna að ég þurfi líka að flýta honum!
Við fórum síðan öll fimm til Piedimonte - lítill bær þarna rétt hjá - þ.s. við heimsóttum vinafólk þeirra. Skoðuðum e-ð safn sem þau áttu og borðuðum síðan hádegismat heima hjá þeim ásamt fullt af fólki (foreldrum þeirra beggja, börnum og fleirum). Þessi máltíð tók alveg endalausan tíma - rúmar 2 klst!
Eftir matinn fórum við aðeins út fyrir bæinn þ.s. ég og Valentina fórum aðeins á hestbak. Í fyrstu var ég ákveðin í að fara ekki á bak en síðan var einn ofurspenntur karl þarna sem píndi mig til þess. Svo var þetta bara svo gaman :-).
Um kvöldið fórum við Simona aftur út með vinum hennar .. fólkið þarna fer víst á djammið bæði á laugardögum og sunnudögum þrátt fyrir að þurfa að mæta í skólann á mánudagsmorgnum.
Mánudagur 30/3: mamma Patrizia skutlaði mér á lestarstöðina kl. 8 um morguninn og þar hitti ég hina Aversa-skiptinemana, þau Caucau frá Kína, Nui frá Thailandi og Oriana frá Venezuela. Við fjögur tókum síðan lestina saman til Caserta eins og alla hina morgna vikunnar.
Í Caserta hittum við síðan alla hina skiptinemana, vorum 21 í heildina - þar af tveir sem búa þarna á svæðinu. Það fyrsta sem við gerðum var að fara á bæjarskrifstofuna í Caserta þ.s. við vorum boðin formlega velkomin á svæðið. Síðan skoðuðum við konungshöllina (La Reggia di Caserta) og garðinn sem fylgir henni. Alveg risastór höll og garður enda var kóngurinn sem átti þessa höll og sá sem átti Versailles í Frakklandi í keppni um hver ætti stærri höll og flottari garð.
Seinni partinn tókum við síðan minnsta og þrengsta strætó sem ég hef á ævi minni tekið! Þetta var hámark 15 manna strætó sem við tróðum okkur í - 21 skiptinemi ásamt 4 sjálfboðaliðum AFS. Þar sátum við í kremju í ca. 30 mín. þangað til við vorum komin til Casertavecchia (gamla Caserta). Í Casertavecchia skoðuðum við okkur aðeins um og settumst síðan niður og borðuðum ís í rólegheitunum sem olli því að við Aversa-gengið misstum af lestinni okkar!:-( Þegar við mættum á brautarpallinn ýttum við á opnunarhnappinn en hann opnaðist ekki heldur fór lestin bara af stað!! Vá hvað við vorum spæld. Við þurftum síðan að bíða í tæpar 2 klst. eftir næstu lest - öll dauðþreytt og svöng. Ég kom því ekki heim fyrr en klukkan ca. 21:30 .. Þetta var þó reynsla til að muna eftir :-).
Þriðjudagur 31/3: frá Caserta tókum við strætó til Napolí og frá Napolí tókum við lestina til Pompei. Í Pompei löbbuðum við þvers og kruss um allt saman og vorum flest öll alveg heilluð - ég a.m.k. :-)
Við vorum þó ekkert allt of heppin með veður því það hellirigndi á köflum og við vorum allan tímann í því að opna og loka regnhlífarnar okkar.
Við eyddum öllum deginum þarna og ég kom ekki heim fyrr en um 18 leytið. Nui frá Thailandi kom heim með mér og við fórum síðan með Valentinu (host-systirin mín) í smá bæjarrölt. Þegar við komum heim um kvöldið borðuðum við kvöldmatinn þótt að klukkan væri orðin mjög margt - þau borða oftast kl. 21 eða kl. 21:30 .. það er ekki fyrir mig. Þau létu mig smakka ekta mozzarella því mozzarella er upprunnin í þessum bæ, Aversa. Máltíðin var reyndar bara mozzarella sem við borðuðum síðan með smá prosciutto og salat eftir á .. frekar fyndið, bara eitt huges mozzarellastykki á disknum:-). Hún var samt svo ótrúlega góð, ég ætla ekki einu sinni að líkja henni saman við það sem ég hafði áður smakkað!
Miðvikudagur 1/4: morgninum eyddum við í einum skóla þ.s. við kynntum okkur og Intercultura (AFS). Eftir hádegi fórum við síðan í heimsókn í mozzarellaverksmiðju þ.s. við fengum að sjá öll stig framleiðslu hennar. Eftir þá heimsókn fórum við í geimskoðun eða hvað sem maður nú kallar það (Planetario heitir það á ítölsku). Það var virkilega flott og áhugavert. Við sátum í svona bíósal og horfðum á skjáinn í loftinu sem fræddi okkur um sólkerfið og það allt.
Fimmtudagur 2/4: þessum degi eyddum við öllum í Napolí. Byrjuðum á því að skoða uppgrefti af gömlu borginni sem er undir smá hluti borgarinnar - alveg 2000 ára gamalt - og skoðuðum síðan eitt nunnuklaustur. Í hádeginu var komið að hápunktinum hjá mörgum. Við fórum nefnilega á veitingastað þ.s. við borðuðum alvöru pizzu!:-) Hún var alveg með eindæmum góð!!
Eftir hádegi löbbðum við meira um borgina .. skoðuðum einn kastala (Castel Nuovo) þ.s. við fengum frábært útsýni yfir sjóinn, Vesúvíus, Pompei, Capri og það allt saman. Ótrúlega flott :-).
Það er sko alveg satt að í Napolí séu engar reglur í umferðinni! Allir keyrðum bara út um allt eins og heimurinn væri þeirra .. enda þurfti maður að passa sig vel ef maður vildi ekki lenda undir bíl - þvílíkt og annað eins umferðaröngþveiti og stress!
Þegar við Aversa-gengi komum til Aversa fórum við öll heim til Nui þ.s. við lékum okkur aðeins í tölvunni við að hlusta á thailenska og kínverska tónlist þangað til tími var kominn til þess að fara á AFS-matinn. Fórum með host-foreldrum Nui heim til mín þ.s. við náðum í host-fjölskylduna mína og saman keyrðum við öll til Caserta. Mættum síðan 1½ klst. of seint í matinn enda ekkert verið að flýta sér neitt. Á matnum var að sjálfsögðu borðað, síðan var sungið, dansað í halarófu eins og hálvitar og tekið myndir - rosa gaman :-).
Föstudagur 3/4: um morguninn keyrðum við til annars bæjars sem ég veit ekki hvað heitir þ.s. við heimsóttum hótel/kokkaskóla. Þar var komið fram við okkur eins og konungsfólk enda krakkarnir að læra að verða þjónar og þess hátt. Áður en við fengum að borða fórum við í smá AFS-leik með nemendunum þ.s. við þurftum að svara spurningum um mismunandi venjur. Af þeim 8 spurningum sem við náðum að gera var ein um Ísland! Það var spurt um hvað stæði í íslensku símaskránni auk nafns og símanúmers og það var að sjálfsögðu atvinna. Ég þurfti að standa upp og segja að þetta væri rétt, síðan var ég beðin um að bera fram föðurnafnið mitt því enginn getur sagt það hérna og að lokum útskýrði ég þetta -dóttir/-son fyrirkomulag í enn eitt skiptið.
Í hádegismatnum fengum við fjögurra rétta máltíð sem kokkanemarnir höfðu eldað. Forrétturinn, fyrri rétturinn og seinni rétturinn voru allir úr fiski :-) þvílík heppni á mér!:-)
Við komum tilbaka til Caserta kl. 15:30 og áttum þá frían tíma það sem eftir var dags. Við frá Aversa ætluðum okkur að gera bara eitthvað í Aversa og tókum því lestina kl. 15:50. Lestaóheppnin fylgdi okkur aftur þennan daginn því að á fyrstu stoppistöðinn slökkti lestin á sér og var hún þá ekki bara biluð! Við þurftum því að skipta um lest og fara aftur tilbaka til Caserta þ.s. við biðum heillengi án þess að vita hvernig við kæmumst heim því allar ferðir til Aversa lágu niðri. Að lokum var útveguð rúta sem flutti okkur farþegana til Aversa og komum við síðan þangað tæpum 2 klst. seinna en áætlað var! Þ.a.l. var frídagurinn okkar næstum búinn.:-(
Papà Corrado náði í mig á lestarstöðina og skutlaði mér til Valentinu þ.s. hún var á dansæfingu og saman fórum við síðan heim. Um kvöldið fórum við tvær út að borða með vini hennar og bróðir hans (kallarnir sem áttu hestana sem við fórum á hestbak á). Þeir sögðu að þeim langaði svo til að hitta mig áður en ég færi til að kveðja mig en það hefur án efa bara verið afsökun fyrir vin Valentinu til að hitta hana - þau verða par áður en langt um líður, enginn vafi um það!
Laugardagur 4/4: æ æ .. það var víst kominn tími til að fara heim!:-( Enginn af okkur skiptinemunum vildi fara enda var ekki auðvelt að kveðja, hvorki skiptinemana né host-fjölskylduna.
Það var alveg slatti af öðrum krökkum með mér í lestinni til Mílanó og leið því ferðin mjög hratt. Ég lagði af stað kl. 10:44 og kom kl. 19:25 til Mílanó. Þar voru mættar mamma Fausta og Piera frænka og saman biðum við þangað til kl. 21:25 þegar lestin lagði af stað til Domodossola. Ég kom síðan heim tæplega hálftólf eftir laaangt ferðalag!
Sunnudagur 5/4: svaf vel og lengi enda mjög þreytt eftir að hafa keyrt mig svoleiðis út alla daga vikunnar. Tók það síðan bara rólega um daginn .. það eina sem ég gerði var að borða, fara út að hlaupa, vera í tölvunni og þess háttar daglega hluti.
Mánudagur 6/4: mætti í skólann eftir langt frí .. fór síðan út í göngutúr upp í fjall með Auroru seinni partinn. Beið mín svo ekki bara einn lítill og sætur pakki að heiman með tveimur mölbrotnum páskaeggjum fyrir mig og Roby og páskaglaðning fyrir hin tvö. Við tókum smá forskot á sæluna og opnuðum þau strax um kvöldið :-) mmm .. Roby var sko hrifinn af þessu!
Ég fékk málsháttinn 'Betra er að róa en láta undan' sem einhver má endilega útskýra fyrir mér .. er svo vitlaus í þessum málsháttum.
Þriðjudagur 7/4: í morgun fór ég bara í skólann. Kom síðan heim, borðaði, veitti ömmu Wilmu smá félagsskap á meðan hún straujaði heima hjá okkur, fór síðan á bókasafnið og á eftir fer ég síðan á hlaupaæfingu með hópnum. Þessar æfingar eru komnar í svo mikið óskipulag eftir öll þessi ferðalög mín .. það gerir þó lítið til. Ég vinn þetta upp seinna ;-).
Þangað til næst ;-)
Katrín Sif
28 vikur
Föstudagur 13/3: föstudagurinn þrettándi! :/ Á Ítalíu er það hins vegar föstudagurinn sautjándi sem er talinn óhappadagur .. bara svona smá fróðleiksmoli upp á fönnið :-).
Eftir skóla borðuðum við Elyse saman og fórum síðan í ítölskutímann. Allt jafn mikið stuð í honum :-) hehe .. Perugini kallinn allt jafn léttur á því!
Seinni partinn fór ég út að hjóla. Það var ekkert smá gott veður - sól og 19°C !! :-) Ekki hef ég nú upplifað það áður í mars.
Laugardagur 14/3: fór í skólann um morguninn, síðan út að hlaupa með Auroru seinni partinn og að lokum út að borða með Valentinu trúnaðarmanni um kvöldið.
Sunnudagur 15/3: við fjögur (ég, mamma Fausta, papá og Roby) eyddum deginum saman á skíðum enda sól og gott veður. Lögðum af stað rétt fyrir hádegi og vorum komin á svæðið, Piana di Vigezzo, eftir ca. hálftíma keyrslu. Það var ekkert smá fallegt útsýni þarna, maður sá t.d. mjög vel í svissnesku Alpana. Þetta skíðasvæði var sko ekkert Cheggio! Þarna voru alvöru brekkur sem maður þurfti heldur betur að vanda sig við að skíða niður. Mér gekk þó mjög vel þó ég segi sjálf frá og komst alltaf heil niður. :-) Við vorum síðan komin heim aftur um 17 leytið.
Mánudagur 16/3: frekar rólegur dagur - skóli, undirbúningur fyrir Rómarferðina og hjólatúr.
Þriðjudagur 17/3: vaknaði kl. 4 um nóttina því við áttum að mæta kl. 4:45 á strætóstöðina í Domo. Papá greyið vaknaði og skutlaði mér. Það var síðan lagt af stað kl. 5 - 3 bekkir (49 nemendur) og 3 karlkennarar. Ferðin gekk mjög hratt og vel fyrir sig. Við keyrðum m.a. í gegnum Parma, Toscana og Flórens .. :-) Eftir 10 klst. akstur (með miklu stoppi) komum við síðan til Rómar! :-) Váááá .. ég var alveg heilluð :-). Það var svo fyndið þegar við stoppuðum fyrir framan Piazza Venezia þá sagði einn strákur: „E allora .. dov'è questo Colosseo?!?" (Jæja .. hvar er svo þetta Colosseo?!?) :-) hehe ..
Við löbbuðum síðan upp að Altare della Patria og þaðan sáum við glitta í Colosseo í fjarska :-) alveg meiriháttar fannst mér! Skoðuðum líka Piazza di Spagna en fórum síðan upp á hótel enda allir þreyttir eftir langan dag. Hótelið var alveg ágætlega flott, við vorum fjórar saman í litlu herbergi - ég, Elyse, Letizia og Francesca.
Miðvikudagur 18/3: rúmlega 8 um morguninn lögðum við af stað frá hótelinu. Þurftum að keyra í ca. 1 og ½ klst. til að komast í miðbæinn vegna mikillar umferðar. Fyrst á dagskrá hjá okkur var Colosseo, síðan Fori Imperiali og Piazza di Campidoglio. Í hádeginu fórum við út að borða og fengum týpiska rétti sem voru mjög góðir en kostuðu þó sitt!
Eftir hádegi skoðuðum við Palazzo Chigi þ.s. Berlusconi og félagar vinna, „Il senato", Pantheon, Piazza Navona og Fontana di Trevi. Þessir kennarar sem voru með okkur voru svo ofsalega óskipulagðir að það endaði með því að þeir leyfðu okkur að gera þ.s. við vildum. Við Elyse fórum því með þrem öðrum stelpum að skoða sumt af þessu - það var þó eiginlega bara þæginlegra, tók okkur heldur enga stund að læra að rata þarna um. :-)
Fimmtudagur 19/3: um morguninn fórum við beint í Vatikanið að San Pietro. Ekki var nú minna fallegt þar! :-) Við þurftum að bíða í a.m.k. 500 m langri röð til að komast inn en það var þó alveg þess virði. Flest allir fóru líka upp í hvelfinguna, þ.á.m. ég. Löbbuðum upp 551 þrep til að komast upp. Fjöldi þrepanna var nú ekki aðal vandamálið skal ég segja ykkur .. stigagangurinn varð alltaf þrengri og þrengri, stundum snertust m.a.s. báðar axlirnar mínar við veggina sitthvorum megin og síðan hölluðu veggirnir alltaf meira og meira enda hvelfingin kúpt. Ég get sko alveg viðurkennt það að ég var smá hrædd á tímabili!
Þegar upp var komið blasti síðan við manni útsýni yfir alla borgina og öll hræðsla gleymdist :-).
Klukkan rúmlega 13 var búið að ákveða að hittast á torginu fyrir framan San Pietro en eins og alltaf þá þurftum við nemendurnir að bíða eftir kennurunum! Þá sérstaklega Aloisio sem var alltaf síðastur .. hann er svo ofsalega spes greyið kallinn.
Við fengum okkur síðan að borða ógeðslegan mat á einhverjum ógeðslegum veitingastað sem kennararnir sögðu okkur að fara á! Þetta hefur örugglega verið eini vondi veitingastaðurinn í Róm og við þurftum endilega að fara þangað :/ eftir á voru allir krakkarnir líka bandbrjálaðir og reyndu sko ekkert að leyna óánægju sinni!
Eftir þennan skrautlega hádegismat skoðuðum við Castello di Sant'Angelo og löbbuðum síðan öll saman í miðbæinn. Þá vorum við látin laus þar til við áttum bókaða heimsókn inn í „Senato". Sú heimsókn fannst mér áhugaverð. Við máttum þó ekki gera neitt, sátum bara alveg þögul og fylgdumst með því sem fór fram. Það var frekar fyndið að sjá suma þingmennina þarna hálfsofandi, greinilega mjög áhugasamir yfir því sem fram fór.
Rúmlega 8 um kvöldið komum við síðan þreytt en ánægð á hótelið.
Föstudagur 20/3: ekki var verið að slappa neitt af .. lögðum af stað tæplega 8 um morguninn, keyrðum í ca. 2 klst. þar til við vorum að komin að bænum Orvieto. Þar stoppuðum við, tókum togbraut eða hvað sem það nú heitir (funivia) til að komast að bænum. Í Orvieto skoðuðum við ótrúlega flotta dómkirkju og fengum síðan að gera það sem við vildum í smá tíma. Síðan hittumst við öll á togbrautarstöðinni(??) á fyrirfram ákveðnum tíma en að sjálfsögðu þurftum við að bíða eftir kennurunum - Aloisio var síðastur að vanda, 30 mín. of seinn!
Við héldum síðan áfram keyrslunni heim og vorum komin til Domo kl. 20:30. Síðustu 20 mín. í rútunni eyddi Aloisio við að þakka þessum og hinum í míkrafóninum, alveg að gera okkur krakkana brjálaða. Í lokin bað hann krakkana að gefa Interculura stelpunum gott klapp fyrir að koma með! Hann er alveg ótrúlegur kallinn .. við Elyse hlógum þó bara að þessu :-).
Laugardagur 21/3: ég svaf í tæpar 13 klst. enda alveg úrvinda. Vaknaði síðan með hálsbólgu :-( helv***!! Þar sem ég var eins og drusla allan daginn gerði ég voða lítið. Dundaði mér í tölvunni og fór síðan aðeins út með Leöndru - við höfðum nefnilega ekki hist í rúmar 3 vikur vegna ferðalaga okkar beggja.
Sunnudagur 22/3: þrátt fyrir hálsbólgu og drusluleika dreif ég mig út í smá hjólatúr í morgun - ég bara gat ekki verið kyrr lengur! Eftir hádegi fórum við mamma Fausta í heimsókn til Pieru frænku .. ég hafði ekki hitt hana síðan í lok janúar minnir mig - þvílík skömm.
Í kvöld ætla ég síðan að tala við mömmu, pabba og Örnu á Skype enda kominn tími til :-).
Bestu kveðjur til allra ;)
Katrín Sif Kristbjörnsdóttir
6 mánuðir
Laugardagur 28/2: strax eftir hádegismat fórum við papá og Roby til Cheggio. Þeir létu mig þó úr í Antrona og ég labbaði síðan upp - ca. 7,5 km af brekkum og beyjum! Þetta gekk þó fínt og ég var komin upp á 1½ klst. :-) það var þó frekar óhugnanlegt stundum þegar að ég heyrði og sá snjófljóðin falla í fjöllunum fyrir ofan mig!
Þegar ég kom upp horfði ég á Roby keppa í smá skíðakeppni .. honum gekk ekkert alltof vel og við fórum því bara heim rúmlega fjögur.
Sunnudagur 1/3: vaknaði kl. 7 um morguninn því að ég ætlaði að fara með Auroru að taka þátt í keppni á snjóþrúgum. Vegna slæms veðurs hættum við við að fara :-( ég gaf því bara elskulega kettinum að éta og fór aftur að sofa.
Um daginn fór ég með Auroru í verslunarmiðstöðina í Crevoladossola (næsti bær við Domo) þ.s. við skoðuðum okkur aðeins um.
Mánudagur 2/3: í skólanum voru allir svaka spenntir yfir Þýskalandsferðinni. Deginum eyddi ég bara við ferðaundirbúning: pakka niður, taka út pening, prenta út dagskrá, redda mér orðabók (ítölsk/þýsk) o.fl. Fyrir matinn skellti ég mér í smá hjólatúr - fyrsti hjólatúr ársins hjá mér. Hér er víst enginn snjór sem stoppar mann við að stunda hjólin.
Þriðjudagur 3/3: þegar við mættum á lestarstöðin um morguninn sagði Pozzetta þýskukennari okkur að Russo, kennarinn sem átti líka að fara með okkur, hefði ökklabrotnar kvöldið áður og gæti þ.a.l. ekki farið :/ greyið .. hann sem er svo skemmtilegur!
Klukkan 9 lögðum við af stað. Þurftum að skipta tvisvar um lest - fyrst í Basil í Sviss og síðan í Frankfurt - og komum síðan til Würzburg um 17 leytið. Þjóðverjarnir náðu í okkur á lestarstöðina. Ég fór síðan með Susanne (stelpunni sem ég var hjá) og foreldrum hennar - Wilfried og Christina - til Eibelstadt rétt fyrir utan Würzburg. Fyrir kvöldmatinn fórum við Susanne í labbitúr um bæinn. Allt út í svona húsum með spýtum á þvers og kruss, veit ekki hvað þau kallast .. virkilega flott allavega, var alveg heilluð af þeim :-). Í kvöldmatnum fékk ég ofsoðið pasta með sugó og súkkulaðibúðing .. ekkert miðað við herramannsmatinn sem ég fæ hjá papá! :-) hehe ..
Miðvikudagur 4/3: um morguninn hittust við öll í mötuneyti Siebold Gymnasium (skólinn) þ.s. við borðuðum morgunmat saman. Eftir það fórum við að skoða „Residenz" og dómkirkjuna. „Residenz" er ekkert smá flott - þvílíkt meistaraverk þar á ferð! :-)
Í hádeginu sátum við öll úti að frjósa úr kulda með smurðar samlokur að heiman. Ég fékk smá Íslandsfíling borðandi samlokur með osti í hádeginu - það er sko ekki venjulegt á Ítalíu enda voru sumar stelpurnar svoleiðis sívælandi yfir að fá ekki sinn pastaskammt! Algjörar .. :-)
Eftir hádegi fórum við í skoðunarferð í bjórverksmiðjuna í Würzburg - Würzburger Hofbräu. Eftir skoðunarferðina var okkur boðinn frír brjór og „brezel" (ljúffengar stórar saltkringlur). Sabrina var frekar frjáls á því og fékk sér 5 bjóra (hver og einn ½ líter) :-) hehe ..
Strax eftir kvöldmatinn tókum við Susanne strætó í bæinn, skruppum aðeins í H&M þ.s. ég keypti mér geðveikt flotta tösku :-) og hittum síðan fleiri stelpur og fórum með þeim í keilu. Það var rosa gaman þrátt fyrir að hæfileikar mínir hafi ekki alveg verið til staðar þetta kvöldið :-).
Fimmtudagur 5/3: um morguninn vorum við í skólanum til kl. 10. Eftir það tókum við lest til Rothenburg þ.s. við löbbuðum þvers og kruss um bæinn - allt út í kastölum og þess háttar miðaldardæmi. Heimsóttum líka „Kriminalmuseum" sem var frekar óhuggulegt .. safn með alls konar pyntingartækjum :/. Áður en við tókum lestina aftur heim skruppum við aðeins inn í Käthe Wohlfart - fræg jólabúð sem er opin allt árið .. mjög dýr líka! Talandi um dýrt þá sá ég eitt tuskudýr í einni búð í Rothenburg sem kostaði € 390.90!!! Það var ekki einu sinni flott .. bara einhver ísbjörn.
Í lestinni á leiðinni til baka var ég o.fl. svoleiðis að farast úr þreytu enda búin að gera margt. Susanne tók á móti mér á lestarstöðinni og saman tókum við strætó ásamt Sabrinu, Je, Mimu, Löru og þýsku stelpunum þeirra heim til stelpunnar sem Mima var hjá. Strætóferðin tók okkur u.þ.b. 1 klst! Eins og við höfðum ekki verið búnar að ferðast nóg þennan daginn. Hvað um það .. heima hjá henni borðuðum við „raclette" og horfðum síðan á German's next top model eða þ.e.a.s. þýsku stelpurnar horfðu á það en ég, Je og Sabrina vorum alveg búnar á því og sofnuðum í sófanum! :-) hehe ..
Klukkan rúmlega 23 kom ég síðan loksins heim eftir að hafa verið í burtu síðan rúmlega 7 um morguninn!
Föstudagur 6/3: tókum lest til Nürnberg, í þetta skiptið fóru Þjóðverjarnir með okkur. Þar skoðuðum við eitt stríðssafn sem var frekar fúlt eiginlega því það eina sem var þar voru nokkrar myndir og svo þurfti maður bara að hlusta á snældu þylja upplýsingar upp fyrir sig.
Eftir heimsóknina á safnið fengum við frítíma í bænum og fórum því að versla. Keypti mér bara einn bol og svo fórum við Susanne í eitt bakaríi að fá okkur smá gott í gogginn. Þar voru nefnilega bakaríi á hverju horni þarna, bæði í Nürnberg, Würzburg og bara hvar sem maður fór.
Að lokum tókum við lestina til baka og vorum komin heim í hús rúmlega 18. Um kvöldið bauð Susanne mér að fara með sér á tónleika með Peter Fox (söngvari frá Berlín - eldheitur í Þýskalandi um þessar mundir) því hún hafði unnið 2 miða. Þrátt fyrir að hafa aldrei heyrt um hann áður fórum við og ég hafði bara virkilega gaman af :-) við heyrðum síðan eftir á að það voru 4000 manns þarna!
Laugardagur 7/3: um morguninn borðaði öll fjölskyldan saman morgunmat - þvílíkt flott hlaðborð! Ég held ég hafi aldrei borðað svona mikið í morgunmat áður .. eitt soðið egg, jógúrt, banana, brauðsneiðar m/osti og te - mamma mia! Þetta er sko eitthvað annað heldur en á Ítalíu þ.s. þau borða nokkrar kexkökur í morgunmat.
Klukkan 10 var ég mætt fyrir utan „Residenz" eins og allir hinir Ítalarnir. Við fórum í skoðunarferð í vínkjallarann undir „Residenz" og fengum líka að smakka smá hvítvín - kl. 11 um morguninn takk fyrir! Eftir það hafði Pozzetta kennari undirbúið smá leik. Við áttum að labba um bæinn og finna alls kyns upplýsingar og um leið spyrjast fyrir á götunni, á þýsku að sjálfsögðu.
Ég hitti síðan Susanne í bænum um eittleytið og saman fórum við í smá búðarrölt.
Um kvöldið fórum við út með fleiri krökkum .. fórum á tvo bari og höfðum gaman af. :-)
Sunnudagur 8/3: loksins loksins loksins fékk ég að sofa örlítið út :-) alveg til 10! Ég og Christina (mamman) tókum smá göngutúr upp á hæðina fyrir ofan bæinn til að fá útsýni yfir allt svæðið. Það var þó frekar leiðinlegt veður þannig að ég fékk ekki beint hið besta útsýni.
Þennan dag höfðum við allan daginn frían með fjölskyldunum. Þau fóru með mig að skoða eina kirkju (Käppele), síðan löbbuðum við smá meðfram ánni Main sem þverar Würzburg og að lokum fórum við mamman og Susanne og fengum okkur köku á heimilislegasta og krúttlegasta kaffihúsi sem ég hef séð :-). Þetta var eldgamalt hús í bænum Sommerhausen þ.s. voru í boði heimagerðar kökur.
Áður en við löbbuðum heim kíktum við aðeins inn í eina gamla-muna-búð. Eigandinn var ofsalega spenntur yfir að fá Íslending í búðina sína og lét mig skrifa smá kveðju á íslensku í gestabókina sína :-).
Um kvöldið ákváðum við bara að vera heima enda búnar að fara út öll kvöldin. Horfðum á „Bridget Jones Diary 2" á DVD í rólegheitunum og fórum síðan frekar snemma að sofa.
Mánudagur 9/3: um morguninn fórum við smá í skólann en síðan í skoðunarferð um borgina í svoleiðis nístingskulda! Ekki einu sinni góða íslenska ullarpeysan mín hélt mér heitri. Löbbuðum m.a. upp að „Festung" þ.s. við ætluðum að skoða eitt safn en þau höfðu ekki skipulagt þetta betur en það að safnið var lokað.
Eftir hádegi hitti ég síðan Susanne og við fórum enn eina ferðina enn í smá búðarráp. Þegar við komum heim var mamma hennar tilbúin með laukböku fyrir mig til þess að smakka því það er víst týpiskt þýsk sögðu þau (fyrir utan allar pylsurnar að sjálfsögðu en ég borða það náttúrulega ekki).
Í kvöldmatnum og um kvöldið var smá kveðjupartý fyrir okkur Ítalina. Hver og einn kom með e-ð að borða og síðan var borðað, spjallað og sungið :-).
Þegar við komum heim um kvöldið gáfu Susanne og þau mér smá gjöf .. bók um Würzburg og páskaglaðning.
Þriðjudagur 10/3: vaknaði á ókristilegum tíma fyrir þreytta manneskju eins og mig (kl. 6:15) til þess að fara í sturtu og klára að hafa allt til. Mamman leyfði mér að taka smá laukböku í nesti því mér fannst hún svo ofsalega góð :-). Ég kvaddi hana síðan og pabbinn skutlaði okkur tveimur í skólann.
Við þurftum að sitja fyrsta tímann en síðan löbbuðum við á lestarstöðina. Það var ekkert smá skrítið og eiginlega bara erfitt að kveðja þrátt fyrir svona stuttan tíma. Hvernig verður þetta eiginlega hjá mér í júlí!?! :/
Í lestinni var sunginn afmælissöngurinn og borðaður smá kökubiti í tilefni af afmæli Matteo og Alice. Síðan hófst okkar langa og dramatíska lestarferð! Þurftum að skipta 3x um lest - fyrst í Stuttgart, síðan Zurig og að lokum í Brig. Í Zurig gerðist allt dramað. Við vissum að við höfðum bara 13 mín. til þess að skipta um lest og hlupum því nánast á milli brautarpalla. Okkur tókst að skipta um lest í tæka tíð en sagan er þó alls ekki öll núna. Þegar lestin byrjaði að hreyfast heyrði ég bara í krökkunum niðrið: Je er úti! Je er úti! Ég leit því út um gluggann og sá Je hlaupa með lestinni, öskrandi og veifandi höndunum í allar átti. Guð minn góður hvað við vorum öll hrædd! Í öllum æsingnum við lestarhurðina tók Elisa í neyðarstoppið og stoppaði lestina. Þá fór þvílík sírena í gang og við krakkarnir skiptum liði og fórum út um alla lestina í leit af lestarverði. Að lokum komst Je inn og lestin lagði af stað tæpum 10 mín. of seint! Je hafði verið svo ofsalega sniðug að setja allt dótið sitt inn í lestina og taldi sig síðan hafa tíma til þess að reykja eina sígarettu áður en lestin færi af stað og fór því aftur út. Ef okkur hefði ekki tekist að stöðva lestina hefði hún því verið ein í Zurig án síma, penings og alls annars nema eins kveikjara. Þetta bjargaðist þó sem betur fer en kannski þarf skólinn að borga sekt.
Þetta er þó ekki allt því við vissum að næst þegar við þurftum að skipta um lest höfðum við bara 12 mín. til að skipta og við höfðum þegar tapað 10 mín! Því voru allir í stressi í byrjun en síðan náði lestin að vinna upp glataðan tíma þannig að við komum á réttum tíma til Brig. Þar vorum við líka mjög heppin því brautarpallurinn sem við þurftum að fara á var við hliðina á þeim sem við vorum á.
Við komumst því heilu og höldnu til Domodossola kl. 17:50 alveg á réttum tíma :-). Papá og Roby komu að ná í mig og ég fékk síðan góðan og heitan mat að borða .. loksins! :-)
Miðvikudagur 11/3: fór í skólann .. það var víst ekkert frí lengur. Við gerðum þó eiginlega ekkert því allir kennararnir voru til í að spjalla og heyra ferðasögur.
Þegar ég kom heim beið mín þá ekki elskulegi kötturinn vælandi sem aldrei fyrr, ég sem var búin að hafa það svo gott án hans!
Seinni partinn fór ég út að hlaupa til að hressa aðeins upp á hlaupaminnið hjá mér. Um kvöldið var sorg á heimilinu - Inter tapaði fyrir Man Utd. og datt þ.a.l.út ..
Fimmtudagur 12/3: eftir skóla borðuðum við Elyse saman til að segja hvor annarri ferðasögur, hún hafði nefnilega farið til Crotone í Calabriu í skiptiviku AFS á meðan ég var í Þýskalandi. Við keyptum okkur líka ís enda veðrið alveg æðislegt - sól og hlýtt í lofti. Núna held ég sko að vorið sé komið hérna :-) þrátt fyrir að það hafi snjóað einn dag hérna í síðustu viku en það var bara kveðjusnjór - vona ég!
Seinni partinn fer ég síðan á hlaupaæfingu með hópnum í fyrsta sinn í tvær vikur :| það verður nú gaman að hitta þau aftur :-).
Takk fyrir lesturinn ;-)
Katrín Sif
25 vikur
Laugardagur 21/2: um morguninn fór ég í skólann - ég bara farin að fara í skólann á hverjum laugardegi núna :-) hehe .. Eftir skóla kom ég heim, fór að versla með mömmu Faustu og síðan út að hlaupa (í glænýjum rosa góðum Craft bol!!). Eftir kvöldmatinn hitti ég Elisu Conti á ísbar hérna í bænum og við fengum okkur svona flottan ís. :-) Síðan fórum við saman í leikhúsið í Villa þ.s. var einhver Carneval viðburður. Fullt af fullorðnu grímuklæddu fólki að gera sig að fífli uppi í sviði og síðan voru tvö „hjón" gefin saman en enginn vissi þó hver þau væri. Leikurinn gengur nefnilega út á það að bæjarbúar eiga að giska hverjir þetta eru (þetta er hefð hérna í Villa, 30. skiptið sem þetta er gert!). Amma Franca var m.a.s. einu sinni „brúðurin" en þau mamma Fausta, papá og Roby þekktu hana varla nema útaf því að hún var með hanska sem mamma Fausta átti. Annars er eiginlega ómögulegt að vita hverjir þetta eru því þau eru svo vel dulbúin.
Sunnudagur 22/2: í hádeginu var borðuð Polenta í tilefni af Carneval-inu. Það er víst hefð fyrir því hérna á mínu svæði. Eftir hádegi fór ég út á torg með Auroru. Þar var svaka skrúðganga þar sem voru 5 mismunandi vagnar frá mismunandi hverfum Villadossola. Síðan var nefnd sem ákvað hvaða hverfi myndi vinna. Að lokum voru grímurnar teknar af „hjónunum" og allir svaka hissa! Hehe :-)
Mánudagur 23/2: frí í skólanum útaf Carneval-inu. Um morguninn fór ég út að hlaupa með Auroru í sól og 13°C :-). Þegar ég kom heim þurftum við Roby að elda okkur sjálf hádegismat enda ein heima. Hann hafði svaka gaman af þessu :-) hehe ..
Eftir matinn fór ég út að labba með Jeff, í þetta skiptið löbbuðum við til Pallanzeno!
Þriðjudagur 24/2: síðasti dagur Carneval-sins, „martedí grasso" (feiti miðvikudagur). Eftir hádegi fór ég til Domo þ.s. ég hitti Elyse. Við væfluðumst aðeins um bæinn sem var fullur af fólki enda ennþá smá Carneval uppákomur í gangi. Þegar ég kom heim fór ég eiginlega beint á hlaupaæfingu.
Um kvöldið kom Nardo vinur papá til okkar til að horfa á Inter vs. Man Utd. Ég mátti bara horfa á leikinn með einu skilyrði - að ég sæti í sófanum án þess að segja orð og alls ekki brosa ef að Man Utd. myndi skora! :-) hehe .. Harðir Inter aðdáendur hér á ferð. Ég horfði þó á leikinn, sitjandi í sófanum og slefandi yfir Ronaldo. :-)
Miðvikudagur 25/2: fyrsti skóladagurinn eftir þæginlegt Carneval frí :-). Við Roby vorum þó ekki alveg að nenna að byrja aftur í skólanum .. svona er maður alltaf latur!
Annars gerði ég mjög lítið þennan daginn fyrir utan skólann, hlaupatúr, snyrtistund Katrínar og Skype-spjall um kvöldið. :-)
Fimmtudagur 26/2: skóli og hlaupaæfing með hópnum.
Föstudagur 27/2: þegar að ég labbaði inn í leikfimisalinn í morgun sá ég þá ekki „hest" blasa við mér! Ég hugsaði strax til leikfimitímanna heima þegar við Kolbrún og Sólveig vorum alltaf að drepast úr hræðslu yfir því að stökkva yfir hestinn:/ Ég neyddist þó til að stökkva yfir hann því að við vorum í svona liðum og það var keppni um hver gerði flestar æfingar og ég var víst í keppnisfyllsta liðinu! Ég sigraðist því á hræðslunni með trompi og stökk 44 sinnum yfir hann :-) enda unnum við síðan keppnina :-).
Eftir skóla var ítölskutími. Ég borgaði skólaferðina til Rómar þannig að nú er alveg pottþétt að ég fari :-) 17.-20. mars :-) get ekki beðið!
Þar sem ég er að fara til Þýskalands á þriðjudaginn þá kemur víst ekkert blogg á næsta föstudag. Í mars koma bloggin bara þegar að þau koma því að ég verð á svo miklum ferðalögum. Þið verðið því bara að bíða spennt á hverjum degi :-) hehe ..
Takk fyrir lesturinn og hafið það öll sem allra best ;-)
Katrín Sif Kristbjörnsdóttir
